9/22/11


Síðustu helgina í september verður haldin Ljóðahátíð í Eyjafirði.
Aðstandendur hennar eru Verksmiðjan á Hjalteyri, Populus tremula og
Skógræktarfélag Eyfirðinga.

Hin árlega Ljóðaganga í Eyfirskum skógi verður að þessu sinni hluti
hátíðarinnar og nú haldin í Grundarskógi í Eyjafirði.

Dagskrá verður þríþætt eins og fram kemur hér að neðan. Hópur góðskálda
heimsækir Eyjafjörð og les ljóð sín fyrir heimamenn og gesti.

Fram munu koma m.a. eftirtalin skáld:

Guðbrandur Siglaugsson
Anton Helgi Jónsson
Kristín Svava Tómasdóttir
Bjarni Gunnarsson
Þórunn Erlu Valdimarsdóttir
Ísak Harðarson

Fyrst verður ljóðakvöld í Verksmðjunni á Hjalteyri kl. 21.00 föstudaginn 23. sept.

Síðan Ljóðaganga Grundarskógi í Eyjafirði kl. 14.00 laugardaginn 24. sept.

Að lokum ljóðakvöld í Populus tremula sama kvöld kl. 21.00.

Aðgangur verður ókeypis og öllum heimill. Malpokar leyfðir.

Ljóðahátíðin er styrkt sérstaklega af Menningarráði Eyþings, Uppheimum og
Amtsbókasafninu á Akureyri.

9/8/11



Reynsla er Þekking
George Hollanders / Sharka Mrnakova / Birgit Ehrhardt
Verksmiðjan á Hjalteyri
10. - 25. september 2011

Opnun laugardaginn 10. september kl. 14
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 og eftir samkomulagi 892 6804

https://www.facebook.com/event.php?eid=153838708036850

Sýningin Reynsla er Þekking er lífandi og listræn framsetning sem beinir athygli að eko- og útikennslu í leikskólum, náttúrulegum leikgörðum og áhrifum þeirra á þroska fólks - bæði andlegan og líkamlegan. Þetta er einskonar hugleiðsla um óhefðbundnar kennsluaðferðir sem byggja á "experiential learning".

Miðpunkturinn er manneskjan, skilningarvit hennar, tengslin við náttúruna, náttúrulögmál, staðbundnar atvinnugreinar, auðlindir, menningararfleifðin, samfélagið og sjalfbærir lífnaðarhættir.
Sýningin mun standa frá 10. til 25. September 2011 í Verksmiðjunni á Hjalteyri.

Náttúrulegir leikvellir er gerðir úr náttúrulegu eða endurunnu hráefni eða hlutum. Heildrænt umhverfi sem þessar leikgarðar mynda, miðar að því að örva skilningarvit barnanna og fólks og færa þau nær náttúrunni og samfélaginu sem þau búa í.

Sýningin er margþætt og er samstarfsverkefni Sharka Mrnakova, George Hollanders og Birgit Ehrhardt.

Meðal þess sem verður sýnt er:
Afrakstur af þróunarverkefni um útikennslu sem var unnið í sumar í samstarfi við leikskólann Iðavelli á Akureyri. Þar voru elstu börnin úti alla daga frá júni og fram í miðjan júli á nærliggjandi leikvelli og unnu í anda úti leikskóla. Unnið var með náttúruleg og endurunnin hráefni, menningararfleifðinna s.s. sögur og staðbundna starfshætti, skilningarvitin, náttúrulögmál og element svo eitthvað sé nefnt. Einnig var unnið með órjúfanleg tengsl manneskjunnar og náttúrunnar með því að leggja áhersla á sjálfbæra lifnaðarhætti, endurvinnslu og náttúruvernd í gegnum daglegt starf eða upplifun og fræðslu.

Sýnt verður bland af verkefnum barnanna en einnig gögnum sem leikskólakennara söfnuðu saman s.s. upptökur (hljóð og myndbönd), ljósmyndir og fleira.

Einnig verða til sýnis hönnunarferli og uppbygging í samvinnu við foreldra frá náttúralegum leikgarði sem varð til við Krílakot í sumar til að gefa innsýn í hugmyndfræði á bak við þessa tegund af leikgörðum.
Til sýnis verða aðferðir og óhefbundnar leiðir til að endurnýta sorp eða úrgang við kennslu í leikskólum eða fræðsluaðferðir.

Ýmsar innsetningar leika sér að skilningarvitum gesta og gangandi og eru gagnvirk til að gefa dýpri innsýn í eigin reynsluheim og hugmyndafræðina á bak við náttúrulega leikgarða og "experiential learning". Einnig eru til staðar gagnvirkt vinnusvæði þar sem gestir og gangandi geta tekið þátt í og skapað sína eigin hugarsmíð.

Á sýningunni er einnig ítarleg kynning um eko- eða úti leikskóla og náttúrulega leikgarða.

Menningarráð Eyþings er stuðningsaðili sýningarinnar.

George Hollanders & Sharka Mrnakova
Nánari upplýsingar veitir George i síma 892 6804

7/26/11



KVELDÚLFUR – sjónsuða
Verksmiðjan á Hjalteyri fyllist af lífi næstkomandi laugardag, þann 30. júlí, þegar sýningin Kveldúlfur - sjónsuða verður opnuð. Þetta er samsýning nokkurra ungra
myndlistarmanna og hönnuða sem flest eiga það sameiginlegt að hafa tiltölulega nýlokið listnámi sínu.

Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru:

Baldvin Einarsson
Bergur Anderson
Bryndís Björnsdóttir
Darri Úlfsson
Elísabet Brynhildardóttir
Ingvar Högni Ragnarsson
Katla Rós
Klængur Gunnarsson
Lilja Birgisdóttir
Loji Höskuldsson
Ragnar Már Nikulásson
Selma Hreggviðsdóttir
Sindri Snær S. Leifsson
Þórgunnur Oddsdóttir

Sýningin verður opnuð kl. 15 á laugardaginn. Svo kemur kveldúlfur í mannskapinn og kl. 21 hefst dagskrá með tónlist og gjörningum í verksmiðjunni. Meðal listamanna sem þar koma fram eru Unnur Andrea Einarsdóttir og hljómsveitin Indigo. Og sviðið verður opið fyrir þá sem vilja troða upp.

Sýningin Kveldúlfur – sjónsuða stendur yfir frá 30. júlí til 21. ágúst 2011.
Nánari upplýsingar um sýninguna veitir Selma Hreggviðsdóttir í síma 868 9720

Verksmiðjan á Hjalteyri er opin um helgar milli klukkan 14 og 17.

Um sýninguna:
Það er Verslunarmannahelgi og við leggjum land undir fót, nokkrir myndlistarmenn og hönnuðir með svefnpoka, dýnur og fullan haus af hugmyndum.

Þó ekki svo fullan að það sé ekki pláss fyrir eins og eina Hjalteyri þar.

Hún þarf að komast inn í höfuðið líka.
Það er mikilvægt.

Við mætum á staðinn, grúskum og sjóðum. Hver og einn með sína verksmiðju í höfðinu. Og við vinnum líka saman. Samskipti verða efniviður.

Svo kemur í okkur kveldúlfur. Við bjóðum fleirum að taka þátt. Sláum upp hátíð þegar kvöldar með tónlist og guð má vita hverju.

Uppi á palli, inn í tjaldi, vonandi skemmtiði ykkur vel.


Menningarráð Eyþings, Hörgársveit, Ásprent, Tengir, Norðurorka og Kaldi styrkja Verksmiðjuna á Hjalteyri.

7/19/11

Verksmiðjan á Hjalteyri


Fréttatilkynning

Uppáhaldslög

Kristján Pétur Sigurðsson verður með tónleika í Verksmiðjunni á Hjalteyri laugardagskvöldið 23. júlí og hefjast þeir kl. 20:30.
Flutt verða nokkur uppáhaldslög eftir bæði Kristján Pétur og aðra. Húsið mun sjá um hljóðmögnun. Sérlegir aðstoðarmenn eru Guðmundur Egill Erlendsson og Birgir Sigurðsson. Aðgangur er ókeypis.
Hér er hægt að skrá sig á viðburðinn á facebook: https://www.facebook.com/event.php?eid=222566907785635

Nánari upplýsingar veitir Kristján Pétur í síma 895 9546 og í strandkp@simnet.is



Síðustu forvöð eru svo að sjá sýninguna Innsýn í Verksmiðjunni á Hjalteyri um helgina. Sýnendur eru Eygló Harðardóttir, Guðjón Ketilsson, Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, Joris Rademaker og Jón Laxdal.
Joris Rademaker er sýningarstjóri og hann valdi fjóra listamenn með sér til að vinna frjálslega með hugmyndir sem tengjast að einhverju leiti starfsemi Verksmiðjunnar og rými hússins. Á sýningunni eru skúlptúrar, málverk, veggmálverk og innsetningar.
Verksmiðjan er styrkt af Eyþingi.

Sýningin er opin laugardaga og sunnudaga milli kl. 14.00 - 17.00 og einnig á meðan tónleikar Kristjáns Péturs standa yfir.

6/27/11


Verksmiðjan á Hjalteyri


Fréttatilkynning

Innsýn

Eygló Harðardóttir
Guðjón Ketilsson
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
Joris Rademaker
Jón Laxdal

2. - 24. júlí 2011

Laugardaginn 2. júlí kl. 15.00 opnar sýningin Innsýn í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Sýnendur eru Eygló Harðardóttir, Guðjón Ketilsson, Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, Joris Rademaker og Jón Laxdal.
Joris Rademaker er sýningarstjóri og hefur valið fjóra listamenn með sér til að vinna frjálslega með hugmyndir sem tengjast að einhverju leiti starfsemi Verksmiðjunnar og rými hússins. Á sýningunni verða skúlptúrar, málverk, veggmálverk og innsetningar.
Sýningin er styrkt af Eyþingi.

Sýningin er opin laugardaga og sunnudaga milli kl. 14.00 - 17.00.
Síðasti sýningardagurinn er 24. júlí.

Nánari upplýsingar veitir Joris Rademaker í síma 462 7818 og Guðrún Pálína í gudrunpalina@hotmail.com

6/7/11

FRÉTTATYLKYNNING

8:45 að bandarískum tíma ...
12:45 að íslenskum tíma ...

þúsundir létu lífið

við skulum biðja um betri heim


biðja
nógu
nógu
heitt


máttur bæna hefur verið sannaður


Ástarsetningar í Verksmiðjunni á Hjalteyri

Laugardaginn 11. júní kl. 20.00 flytja Margrét Lóa Jónsdóttir skáldkona og Páll B. Szabo tónlistarmaður frumsamið tónverk Páls við ljóð Margrétar úr bókinni Tímasetningar.

Þetta er fyrsti viðburðurinn í Verksmiðjunni þetta sumarið en dagskrána í heild sinni má sjá á bloggsíðunni: www.verksmidjan.blogspot.is
Verksmiðjan er opin um helgar frá kl.14.til 17.
Hægt er að skoða Ljóðainnsetninguna Ástarsetningar á þeim tíma, hún stendur til 26 júní.