5/28/09

HERTAR SULTARÓLAR


Verksmiðjan á Hjalteyri loftar út eftir veturinn með sýningunni “Hertar sultarólar” og vill með henni vekja athygli á að eftirtalin kunna að hafa öðlast nýtt líf, stökkbreytt og endurhönnuð til framtíðar:
gálgi - ónýt heimilistæki – listamaður – sígarettur – kjóll – gildi – straujárn - ferskur fiskur – frístundafólk – markaður – blússa - fjársjóður - úrelt dagatöl – langanir - klippimyndir – safnarar – matarumbúðir – dagblöð – pils – hönnuður – myndverk – vél - ruslakista - hráefni og konsept.

Sýningarstjóri “Hertra sultaróla” er Aðalheiður S. Eysteinsdótti og hefur hún fengið 15 listamenn til liðs við sig. Þau eru:
Pétur Kristjánsson
Helgi Þórsson
Georg Hollanders
Henriette van Egten
Anna Richards
Jónborg Sigurðardóttir
Haraldur Ingi Haraldsson
Safn Hafdísar Ólafsson
Kristinn Rúnar Gunnarsson
Erika Lind,
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir
Laufey Pálsdóttir
Arnfinna Björnsdóttir
Hans Kristján
Lene Zachariassen
7. og 8. bekkur Þelamerkurskóla undir handleiðslu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur

Sýningaropnun er 30. maí kl.15.00. Sýningin stendur til 21. júní og er eingöngu opin um helgar frá kl. 14.00 til 17.00.
Sýningargestir eru hvattir til að leggja til hliðar ráðandi verðmætamat og njóta líðandi stundar.

Rúta fer frá Torfunesbryggju á opnunina kl:14:45 og fer til baka um 17:00.
Miðaverð er 500 kr.
Aðeins fer ein rúta svo við bendum fólki á að panta sér sæti hjá Þórarni Blöndal "thorarinnb@simnet.is
eða hjá Hlyni Hallsyni "hlynur@gmx.net"