Föstudaginn 5 júlí kl 17:00
Verið velkomin á opnun sýningarinnar
VERKFÆRIÐ
í Verksmiðjunni á Hjalteyri
Elísabet Brynhildardóttir
Guðrún Benónýsdóttir
Selma HReggviðsdóttir
Það
fer varla framhjá neinum sem kemur á Hjalteyri hversu þung og
yfirgnæfandi Verksmiðjan er líkt og kastali eða virki.
Síldarverksmiðjan
á Hjalteyri er þó ekki einungis bygging, heldur verkfæri.
Ekki
bara hús með fjórum útveggjum heldur er öll byggingin hugsuð
með ákveðið hlutverk í huga. Hver veggur, súla, lúga og op
hefur einhvern ákveðinn tilgang, eitthvert ákveðið notagildi.
Innsetning
okkar í rými verksmiðjunnar er monument um sköpunarsögu þessa
hús, ferlið og framkvæmdirnar sem beitt var við verkið.
Kastalinn sem rís í myrkrinu stendur sem minnisvarði ákveðins
þennsluástands sem myndast við framkvæmdir stórra drauma. Allir
leggja sitt að mörkum, strúktúrinn rís, verkfærið er
gangsett, margir taka höndum saman og vinna að settu markmiði. Við
sjáum draumakastalann í hyllingum og um stundarsakir er okkur
borgið meðan reykurinn liðast úr verksmiðjureykháfunum.
En
reykur kólnar eins og gamlir draumar og beinagrind skýjaborganna
býr til skuggamyndir í landslaginu.
Það
liggur þó ákveðin fegurð í tómum byggingum
með
horfið hlutverk. Þær birtast sem öfugir pýramídar þar sem
töfrarnir liggja í anda uppbyggingarinnar og í krafti
möguleikanna.
Sköpunin
er í andstæðunum og upp úr rústunum rís nýtt afl.