7/28/10

Verksmiðjan á Hjalteyri

Finnur Keli Kristján?
31. júlí – 5. september 2010
Opnun laugardaginn 31. júlí kl. 16:00
Opið um helgar frá kl. 14 - 17
facebook.com/pages/Verksmidjan-a-Hjalteyri/92671772828?ref=ts

Finnur Arnar, Kristján Steingrímur og Þorkell Atlason

Laugardaginn 31. júlí verður opnuð sýningin "Finnur Keli Kristján ?" í Verksmiðjunni á Hjalteyri.
Sýningin er samvinnuverkefni myndlistarmannanna Finns Arnar, Kristjáns Steingríms og tónskáldsins Þorkels Atlasonar.
Listamennirnir, sem eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu, lögðu land undir fót á húsbíl norður á Hjalteyri viku fyrir opnunina og settu upp sýninguna úr efnis- og hljóðheimi staðarins.
Á opnun verður fluttur gjörningur.
Sýningin stendur frá 31. júlí til 5. september og verður opin um helgar frá 14 - 17. Á virkum dögum er hægt að hafa samband í síma 692 7450 til að skoða sýninguna.
Nánari upplýsingar veitir Finnur Arnar í síma 899 5590 og Kristján Steingrímur í kristjan@lhi.is

Menningarráð Eyþings styrkir Verksmiðjuna á Hjalteyri.
Þessi tilkynning er einnig á http://mynd.blog.is/blog/mynd/entry/1080711