8/19/09

TÓNLISTAGJÖRNINGUR

Tónlistargjörningur verður framinn í Verksmiðjunni á Hjalteyri á föstudagskvöld, 21. ágúst, kl. 21.00. Meiningin er að breyta gömlu síldarverksmiðjunni í hljóðfæri og nota til þess raddir söngfólksins í kammerkórnum Hymnodiu, ýmiss konar slagverk Hjörleifs Arnar Jónssonar, gamalt orgel harmóníum í eigu Eyþórs Inga Jónssonar og fiðlu Láru Sóleyjar Jóhannsdóttur. Flutt verða sígild og alþekkt lög en sannarlega í óvenjulegum og nýstárlegum búningi. Fólki er bent á að koma hlýlega klætt því svalt er í verksmiðjunni. Þó gæti hitnað í kolunum þegar fjörið færist í leikinn ...

Sjá nánar í viðhengdri auglýsingu.

Upplýsingar veita
Eyþór Ingi Jónsson 663-1842
Hjörleifur Örn Jónsson 697-5845
Lára Sóley Jóhannsdóttir 867-0749

Með kveðju,
Hymnodia, Eyþór Ingi, Hjörleifur Örn og Lára Sóley