6/15/09

LJÓÐADAGSKRÁ MEÐ ROKKUÐU ÍVAFI




Laugardaginn 20. júní verður ljóðadagskrá með rokkuðu ívafi í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Umsjónarmaður dagskrárinnar er skáldið og rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson en sérlegir gestir hans verða söngvaskáldin Kristján Pétur Sigurðsson og Þórarinn Hjartarson.
Dagskráin hefst kl. 21:00 og er enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.

Um þessar mundir stendur yfir sýningin "Hertar sultarólar" í Verksmiðjunni, hún er opin laugardaga og sunnudaga milli kl 14:00-17:00 henni lýkur um næstu helgi og því eru síðustu forvöð að sjá þessa sýningu sem hefur hlotið afar góðar viðtökur og verið vel sótt. Sýningunni lýkur sunnudaginn 21. júní.

Nánari upplýsingar veitir Einar Már í símum 567 6254 og 567 6240


Menningarráð Eyþings styrkir dagskrána í Verksmiðjunni á Hjalteyri