6/2/13


KIOSK
http://www.de-lart.org/asso/kiosk.html


Verksmiðjan á Hjalteyri / 8.06 - 23.06.2013 / Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri  http://www.verksmidjan.blogspot.com
Kynning á Kiosk laugardaginn 8. júní kl. 17 :00 / Frá 8 . júní opið  alla daga í Verksmiðjunni kl :  14 :00-17 :00. 

Laugardaginn 8. júní kl. 17 :00 fer fram kynning á  myndlistartímaritinu Kiosk í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Kiosk er útgáfuverkefni listafólks sem listakonan Clémentine Roy fór af stað með árið 2009.
« KIOSK er samstarfsverkefni tveggja. Samtal, Ping – pong tölvupóstar. Skipti á upplýsingum, myndum, teikningum, textum í heilan mánuð. 
Útgáfan DEL’ART  tekur þátt í verkefninu og sér um þann hluta þess sem kemur út á prenti. 
50 tölublöð hafa komið út á netinu og af þeim hafa 14 komið út í prentaðri útgáfu.

Yfirstandandi í Verksmiðjunni er sýningin RE – MEMBER  - ICELAND/SOUVENUS – DE – SI – LOIN og lýkur henni 23. júní.


Koma listamanna og sýningar eru styrktar af, Menningarráði Eyþings og Ásprenti en 
bakhjarlar Verksmiðjunnar á Hjalteyri eru CCP games, Bústólpi og Hörgársveit.

Nánari upplýsingar veitir Gústav Geir Bollason veroready@gmail.com   verksmidjan.hjalteyri@gmail.com og  í síma: 4611450  og 6927450.